28janúar

athathathathathathath

http://www.skatar.is/ulfljotsvatn/default.asp?ItemGroupID=43&NewsID=1776
28. janúar 2008 klukkan 22:45
Hreiđar Oddsson
1 athugasemd
12desember

Hć Ţóra

Góðan dag allir. Langt síðan síðast.

Það er að koma jól. Fabulus jólusus. En það er svo margt að gerast.

Ég hélt að ég væri feministi, allavega að ég styddi feminista. En hvað er að þessu fólki. Gengur með prímadonnuhatta og í tjullpilsum og hagar sér eins og einræðisherrar í fullvalda lýðræðisríki þar sem orðið á götunni er bannað og allt sem viðkemur þeirra mikla valdi er það sem skiptir máli í veröldinni.

Veit ekki betur en að stór hluti af þessari feminisku elítu sem lifir hér á landi séu bókaormar og vinni á bókasöfnum og í bókabúðum, og hvað má kaupa þar og leigja?
Jú Bósasögur og tígulgosa samtímans og liðinna stunda.

Hættið þessu bulli, þið eruð orðin hlægileg og mark vart á ykkur takandi.
12. desember 2007 klukkan 09:00
Hreiđar Oddsson
Engin athugasemd
22október

Útlendingar

Hei ég lenti í magnaðri helgi. Taliði við menn frá Vín í Austuríki og Bratislava í Slóvakíu. Svo talaði ég við Pólverja, Þjóðverja, helling af Íslendingum, klósett, hunda, vaska, fremripart af helling af lömbum, Finna, og margt fleira skemtilegt.

Segið mér eitt. Er útlendingur sem fæðist á Íslandi, Íslendingur????

5FB85BA3F87DEDB27DC179F10F2E5411
22. október 2007 klukkan 10:28
Hreiđar Oddsson
7 athugasemdir
17október

Ég er

Ég er kennari.
Ég er láglaunamaður.
Ég er fyrirvinna 5 manna fjölskyldu.
Ég er smeykur að kjarasamningar okkar verði ekki góðir.
Ég er með 11 klst fasta yfirvinnu á mánuði.
Ég er samt ekki með nema rétt um 300 þúsund á viku.
Ég er ansi smeykur að það dugi ekki fjölskyldunni
Ég er því að leita mér að betur launuðu starfi.
Ég er að óska eftir hugmyndum.
Ég er opinn fyrir öllu.
17. október 2007 klukkan 22:23
Hreiđar Oddsson
5 athugasemdir
14október

WHY

Helgin búin.. hvað er í gangi. Þetta líður svo hratt.

Laugardagurinn var hálfgerð katastroffía. Fór seint að sofa á föstudag eftir að ég horfði á the Condamed. Þvílík snilld og svalari góða gæa hef ég ekki séð lengi. Nema hvað, ég vaknaði svo eldsnemma á laugardagsmorgun með strákunum og horfði á barnatíman. Svo sofnaði ég yfir landsleik Englendinga - týpískt. Fór í afmæli hjá Marie og horfði þar á Íslendinga tapa með buxurnar á hælunum, horfði á ská og fékk hálsríg. Svo var ekkert í sjónvarpinu og svo allt í einu datt ég ofan í "Þjóðargersemina" á rúv. Sofnaði í öllum fötunum og svaf í sófanum til fimm. Frábært.

Fór í Brunch til Orra frænda, hann er tveggja ára. geðveikur matur. Umm matur, eða eins og Hómer segir umm food :)
14. október 2007 klukkan 21:11
Hreiđar Oddsson
Engin athugasemd
12október

Vilti spilti villi

Æji aumingja sjálfstæðismenn í borgarstjórn. vondi strákurinn stal af þeim sleikjónum og gaf einhverjum öðrum hann. Sjálfstæðismenn geta sjálfum sér um kennt að hafa tapað völdum í borginni eftir 17 mánaða stjórnarsetu. Það er ekki Birni Inga að kenna/þakka.

Ekki það að ég sé eitthvað að hylla Björn Inga, en þá verður að segjast að sama hve spilltur og rotinn hann er? þá er hann eini maðurinn sem kemur sómasamlega út úr þessu. Stendur á sannfæringu sinni, og það gerist nú ekki allt of oft.
12. október 2007 klukkan 08:41
Hreiđar Oddsson
Engin athugasemd
11október

Death proof

Ó MÆ GOD djöfulsins snilld. enda kemur maður yfirleitt ekki að tómum kofanum hja Tabbatínó. Kurtussel í geðveikum ham og er ekkert smá geðveikur. Minnti mig á köflum á góðan vin minn í hlutverki brjánsa sýru.

Annars var gærdagurinn góður. var að kenna til 16:20 -- úfff-- og fór svo bara heim..  Það er algjör snilld að vera heima hjá sér. Mæli með að þið prófið það, þið sem vinnið mikið.

Horfði á Kastljósið í "rólegheitum" og í gegnum skrílslæti tveggja skæruliða og gráturs prinsessunnar gat ég ekki betur heyrt en að Þorbjörg Helga ?? sjálfstæðiskona væri að tala gegn sinni eigin sannfæringu. Þetta er ástæðan fyrir því afhverju ég hef alltaf stutt einstaklingsframboð frekar en flokka. -- Þess vegna ætla ég að bjóða mig fram sem forseti þegar fram líða stundir. Þá ræð ég einn ( kannski Eva ráði smá).
11. október 2007 klukkan 08:35
Hreiđar Oddsson
4 athugasemdir
09október

Ný dögun

Vaknaði í morgun og ákvað að verða bloggari ársins. Þið getið kosið mig hér til hliðar : --------

Fór til eyja um helgina með grúppíurnar. Það var mikið stuð. 400 samfés börn ælandi um allan Herjólf á föstudeginum, sofandi á gólfum og uppi á borðum og læti.. minnti mig á dauðaherbergið á Þórskaffi í denn.
Nema hvað við fengum okkur náttúrulega djúpsteikta pylsu áður en við fórum að sofa. Vöknuðum á laugardegi og keyrðum alla mögulega vegaslóða á eyjunni og hlustuðum á Sonur hafsin og stóri dagurinn með Ljótu hálfvitunum. Hittum svo skáta úr eyjum og stunduðum með þeim villt skátastarf, eða krakkarnir gerðu það, ég var meira í að spjalla við liðið. Fórum svo að borða á Kaffi Kró ???? og mössuðum staðinn, hann tæmdist svona hálftíma eftir að við komum í gulum rauðum grænum bláum regnbuxum. Fórum svo í eltingaleik sem Imba klárlega tapaði. Vöknuðum svo eld snemma á sunnudagsmorgni til að fara að sofa í Herjólfi sem sigldi í blíðskapar veðri með suðurströnd Íslands til Þorlákshafnar.

Annars er allt gott... foreldraviðtöl - - Jibbí :)
09. október 2007 klukkan 12:39
Hreiđar Oddsson
3 athugasemdir
22september

Vantar allan .... í mig ???

Jæja ekkert að frétta?? Eða hvað. Nú svo er komið að það eru aðeins nokkrir dagar eftir af fæðingarorlofinu og allt sem ég ætlaði að gera er ekki búið. Það er bara þannig. Annars var ég í Lolekslandi um daginn - það var fínt. Fullt af eldgömlum kellingum með belju í bandi að reyna að leigja út herbergi í húsunum sínum. Var rétt hjá mestu skíðaparadís pólskra, Zapokane, en það vantaði náttúrulega snjóinn. Þetta er í Tatra fjöllunum rétt við landamæri Slóvakíu. 20 klst ferðalag hvor leið. Var þess virði þar sem umhverfið og útsýnið var svo yndislegt.

Hvað þýðir kúrva??
22. september 2007 klukkan 19:51
Hreiđar Oddsson
Engin athugasemd
07september

Nefnd hefur veriđ...

Jæja þá er búið að skíra dömuna og fyrir þá sem vilja vita þá heitir hún Ninja Katrín. Þau eru þrjú börnin mín. Kjartan Logi fæddur 2003, Oliver Funi fæddu 2004 og Ninja Katrín fædd 2007. Auðvitað á ég börnin ekki einn, en mín ástkæra unnusta er Eva Katrín Kjartansdóttir fædd 1981....
07. september 2007 klukkan 12:24
Hreiđar Oddsson
3 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Könnun

Hver er bloggari ársins???

Leit

Innskráningar kubbur

speki

Try not, do or do not, there is no try!!!
The future isn´t what it used to be
66° for real people

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...